Fréttablaðið svaf á morðingjaverðinum

Botn er fenginn í danska glæpinn í sjónvarpinu og framundan eru að óbreyttu tómleg sunnudagskvöld við skjáinn. Danirnir höfðu vit á að enda tuttugu vikna seríu þannig að framhald blasir við í það minnsta í tuttugu vikur í viðbót þegar þar að kemur. Í ráðhúsinu í Köben grasserar spillingin og fnyk leggur líka af löggunni langar leiðir. Þetta kann danskurinn og nógur efniviður bíður framhaldsins.

Reyndar var við því búist hér á heimilinu að málið yrði upplýst strax í morgun í Fréttablaðinu til að taka ómakið af Sjónvarpinu og flýta fyrir. Rannsóknarblaðamenn þar á bæ voru í það minnsta snarir í snúingum að kynna morðingja Pressuþáttanna á Stöð tvö á dögunum og aðstoðuðu þannig óbeðnir  þá sem höfðu misst af lokaþættinum en hugðust bíða endursýningar. Fallega hugsað. Það er nefnilega búið að sýna danska glæpaþáttinn í danska, sænska og norska sjónvarpinu, sem þúsundir Íslendinga hafa aðgang að gegnum Fjölvarp og gervihetti. Ritstjóri Fréttablaðsins meira að segja búinn að vera sendiherra í Köben, kann sjálfsagt sitthvað fyrir sér í dönsku og allt það. En einhverra hluta vegna virðist Fréttablaðið hafa farist á mis við lausn danskaglæps. Þar með hlýtur nú ritstjórnin að þurfa að taka sig á til að eiga séns í verðlaun fyrir rannsóknarblaðamennsku að ári. Engin ástæða samt til að örvænta. Árið er nefnilega ungt og margir margir glæpir eftir sem hægt er að leysa fyrir sjónvarpsáhorfendur áður en sjónvarpið sjálft gerir það.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Um bloggið

Álftaland 5

Höfundur

Atli Rúnar Halldórsson
Atli Rúnar Halldórsson

Nota bene

Myndirnar mínar á flickr.com

www.flickr.com
Atli  Rúnar Halldórsson's Fiskidagur '09 - súpukvöld photoset Atli Rúnar Halldórsson's Fiskidagur '09 - súpukvöld photoset

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband