Bull um bor II

Enginn starfshópur er jafn viðkvæmur fyrir gagnrýni og hvers kyns aðfinnslum um störf sín og fjölmiðlafólk. Fjölmiðlungar eiga eðli máls samkvæmt að vera í hlutverki gagnrýnandans og þess sem aðhald veitir en kunna mönnum sjaldnast miklar þakkir fyrir gagnrýni í sinn garð. Móðgast jafnvel fyrir hönd alls hópsins! Vikið er með nokkurri þykkju í kjaftadálki í 24 stundum í dag að skrifum mínum um borbullið hér á bloggsíðunni og tekið fram að ég væri almannatengill (vert að ,,halda því til haga" eins og skrifað stendur þar) og að hlutverk almannatengils væri að kynna mál fyrir fjölmiðlafólki en að vísu bara frá ,,einni hlið". Ég er að vísu ekki nógu greindur til að skilja hvað það kemur ófaglegri útvarpsfrétt við, nema þá að ég geti sjálfum mér um kennt af því ég hafi ekki staðið mig nóg vel í að skóla fjölmiðlamenn á sínu sviði! Hugsanlegt er að hugsunin á bak við klausuna hafi verið allt önnur, hvað veit ég. Alla vega var fréttin umrædda hvorki frá einni né neinni hlið...

PS.

Lífið getur verið dásamlegt í fjölmiðlaheimum. Á dögunum klóraði ég mér dálítið í kollinum yfir langri og ítarlegri kynningu í Kastljósi á nýjum kjaftaþætti sem var að fara að hefja göngu sína á Skjá einum. Endurtek: dagskrárkynning í sjónvarpi ríkisins á þætti einkastöðvar og meints keppinautar á markaðnum. Svo rak ég augun í það í dagblaði að gestur í næsta þætti Svalbarðaþáttarins á Skjá einum væri einn af umsjónarmönnum Kastljóss. Þetta nefni ég ekki sem gagnrýni heldur hrós. Það er lofsvert á samdráttartímum að fjölmiðlamenn skuli tala hverjir við aðra. Hlýtur að einfalda vinnudaginn og létta byrðar af öxlunum að fara ekki yfir lækinn til að sækja vatnið.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Um bloggið

Álftaland 5

Höfundur

Atli Rúnar Halldórsson
Atli Rúnar Halldórsson

Nota bene

Myndirnar mínar á flickr.com

www.flickr.com
Atli  Rúnar Halldórsson's Fiskidagur '09 - súpukvöld photoset Atli Rúnar Halldórsson's Fiskidagur '09 - súpukvöld photoset

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 210180

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband