Að drepa tímann

Alþingi kom saman í dag eftir margra vikna jólaleyfi og fyrir hafði legið dögum saman að efnt yrði til mótmælaaðgerða á Austurvelli af því tilefni. Þá hefði nú mátt ætla að ríkisstjórnin kæmi galvösk til leiks og hefði frumkvæði að umræðum um ástandið, spilaði einhverju bitastæðu til handa lýðnum í landinu og reyndi í það minnsta að látast sem hún hefði áhyggjur af því sem bullar og kraumar í samfélaginu. 

Nei, góðir hálsar. Þingið kom saman eins og ekkert hefði í skorist. Sjáið bara dagskrá þingfundarins í dag. Ótrúlegt! Þetta er svona álíka út úr veruleikakortinu og ef prestur hæfi minningarorð í útfararathöfn með því að gala yfir kistuna hvítu og syrgjendur: Eru ekki allir í stuði?

  1. Vátryggingastarfsemi, stjfrv., 225. mál, þskj. 304. --- 1. umr.
  2. Greiðslur til líffæragjafa, stjfrv., 259. mál, þskj. 419. --- 1. umr.
  3. Sala áfengis og tóbaks, frv., 37. mál, þskj. 37. --- 1. umr.
  4. Olíugjald og kílómetragjald, frv., 40. mál, þskj. 40. --- 1. umr.
  5. Andstaða við eldflaugavarnakerfi í Austur-Evrópu, þáltill., 49. mál, þskj. 49. --- Fyrri umr.
  6. Tóbaksvarnir, frv., 57. mál, þskj. 57. --- 1. umr.
  7. Stjórnarskipunarlög, frv., 58. mál, þskj. 58. --- 1. umr.
  8. Prófessorsembætti á sviði byggðasafna og byggðafræða, þáltill., 59. mál, þskj. 59. --- Fyrri umr.
  9. Skipafriðunarsjóður, þáltill., 60. mál, þskj. 60. --- Fyrri umr.
  10. Áhrif markaðsvæðingar á samfélagsþjónustu, þáltill., 66. mál, þskj. 66. --- Fyrri umr.
  11. Umferðarlög, frv., 93. mál, þskj. 100. --- 1. umr.
  12. Fjármálafyrirtæki, frv., 111. mál, þskj. 120. --- 1. umr.

Um aðra helgi verður landsfundur Sjálfstæðisflokksins í Laugardalshöll og fyrir liggur að mótmælaaðgerðirnar í miðborginni í dag voru eins konar generalprufa fyrir þá samkomu. Það þykist lögreglan í það minnsta vita. Á sama hátt og  alþingismenn og ráðherrar hófu vorönnina við Austurvöll líkt og ártalið 2007 væri enn í fullu gildi hlýtur landsfundarsetningin að verða með hefðbundnum brag í góðærisanda: lúðrablæstri, áferðarfallegum ávörpum og tilvitnunum í Hannes Hafstein og höfuðskáldin öll. Úti regnið grætur.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Um bloggið

Álftaland 5

Höfundur

Atli Rúnar Halldórsson
Atli Rúnar Halldórsson

Nota bene

Myndirnar mínar á flickr.com

www.flickr.com
Atli  Rúnar Halldórsson's Fiskidagur '09 - súpukvöld photoset Atli Rúnar Halldórsson's Fiskidagur '09 - súpukvöld photoset

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 26
  • Frá upphafi: 210197

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband