Færsluflokkur: Dægurmál

Þorri blótaður að svarfdælskum sið

Það var þess virði að berjast um hríð, fjúki og hálku um heiðar og hæðir til að komast á þorrablót Svarfdælinga um helgina og heima aftur, þó svo heimilisbíllinn héldist ekki á veginum á Holtavörðuheiði á norðurleið. Betur fór þar en á horfðist en giska...

Guðsmildi og spaug

Þegar ég bjó í Noregi fyrir aldarfjórðungi en svo vottuðu ófáir hérbúandi landar mínir mér samúð sína yfir því að þurfa að þola Norðmenn í sambúð, þjóð sem væri meðal annars væri þekkt fyrir lítinn húmor og mikla þörf fyrir að sarga um trúmál daginn...

Sofandi embættismenn

Nú gerist það í annað sinn á skömmum tíma í höfuðborginni að embætti fræðslustjóra rumskar fyrst þegar komið er fram á dag og kemur þeim skilaboðum til foreldra - í gegnum útvarp - að halda skólabörnum heima vegna veðurs, eftir að flest þeirra eru farin...

Nóbelsnefndin úti í skurði

Norska Nóbelsnefndin fer langt með að gera friðarverðlaun Nóbels að marklausu gríni með því að gauka þeim að fyrrum varaforseta Bandaríkjanna og nefnd hjá Sameinuðu þjóðunum.  Viðurkenningin  á heima hjá þeim sem eru í forystu í baráttu fyrir friði og...

Friður í Viðey

Það skal játað hér og nú að mér fannst hugmynd Jókó um friðarsúlu í Viðey hallærisleg frá upphafi en komst á gagnstæða skoðun í kvöld. Þetta var sýnilega ljómandi fín samkoma í nefsteytunni á Sundunum. Jókó og Ringó í stuði og borgarstjórinn farinn að...

Leiðréttingarbúnaður óskast handa fjölmiðlamönnum og verkalýðsforingjum

Ég heyrði í kjaftaþætti á ljósvakanum spyril og verkalýðsforkólf  tala um ,,leiðréttingu" launa og kjara eins og ekkert væri sjálfsagðara. Venjulegt fólk talar um að kaup hækki eða lækki eða að kjör batni eða versni, svona eftir atvikum. Nú eru hins...

Landbúnaður er að sjálfsögðu sjávarútvegur þegar að er gáð

Alltaf hef ég nú vitað það innst inni að í raun væri ég kominn af sjávarútvegsgreifum í Svarfaðardal en ekki einhverjum bóndakörlum og –kerlingum. Það hefur bara aldrei verið hægt að höndla málið almennilega fyrr en nú, þökk sé ríkisstjórninni. Nú...

Skífan og Smekkleysa fá falleinkunn

Ráðamenn Skífunnar, sem er í raun og veru einokunarbúlla á sínu sviði markaðarins, hafa ekki rænu á að ná í hús tónleikaplötu með Jethro Tull sem gefin var út í Bretlandi 21. ágúst síðastliðinn. Sú heitir Live at Montreux og hefur að geyma umtalaða...

Myndi Sjónvarpið stokka líka upp í Rolling Stones?

Guði sé lof fyrir að Rolling Stones eru ekki á samningi hjá Sjónvarpinu í vetur. Þá hefði allt eins mátt búast við að Ron Wood þyrfti að taka pokann sinn í skiptum fyrir einhvern yngri og frískari spilara, jafnvel konu. Mick hefði hins vegar lifað af...

Lömbin jarma, lömbin þagna

Það var engu líkara en þeir Tjarnarbræður kæmu þeysiríðandi beint út úr Gísla sögu Súrssonar þegar þeir nálguðust Tungurétt í Svarfaðardal á sunnudaginn, fylgjandi rekstrinum heim. Senan sem ég slysaðist til að fanga var í það minnsta einhvers konar...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Álftaland 5

Höfundur

Atli Rúnar Halldórsson
Atli Rúnar Halldórsson

Nota bene

Myndirnar mínar á flickr.com

www.flickr.com
Atli  Rúnar Halldórsson's Fiskidagur '09 - súpukvöld photoset Atli Rúnar Halldórsson's Fiskidagur '09 - súpukvöld photoset

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband