Ríkisvæðingar- og skattheimtuáráttan

Lesefni helgarinnar hefur aðallega verið ríflega 150 blaðsíðna kver sem Rannsóknarmiðstöð um samfélags- og efnahagsmál og Bókafélagið Uglan sendu frá sér í fyrri viku: Þjóðareign – þýðing og áhrif stjórnarskrárákvæðis um þjóðareign á auðlindum sjávar. Þarna fjalla nokkrir lögfræðingar og hagfræðingar um ýmsar spurningar sem blossuðu upp í þjóðmálaumræðunni á dögunum, eftir að framsóknarmenn í frústrasjón sinni fundu upp á því á flokksþinginu sínu að rétt væri að láta þingkosningarnar í vor snúast enn einn ganginn um eignarlega stöðu auðlinda sjávar. Textinn um auðlindamálið, sem stjórnarflokkarnir settu saman og hugðust samþykkja inn í sjálfa stjórnarskrána á næturfundi löggjafarsamkundunnar við Austurvöll,  reyndist hins vegar mikið hnoð og ekki brúklegt. Tillagan fór því í pappírstætarann og farið hefur fé betra. Styrmir Morgunblaðsritstjóri og aðrir áhugamenn um þjóðnýta auðlindir til sjós og lands, og skattleggja duglega þá sem þær nýta, stynja hins vegar þungt. Það er eins og ríkisvæðingar- og skattheimtuáráttunni vaxi máttur í öllu pólitíska kerfinu. Meira að segja fara ráðherrar Sjálfstæðisflokksins hamförum gegn eigendum lands og reyna að ríkisvæða sem mest af þinglýstum eignum þeirra frá fjöru til fjalla. Stjórnarandstaðan horfir á aðfarirnar með velþóknun og Framsóknarflokkurinn sömuleiðis í reynd.

Bókin góða er vítamín og elexír gegn ríkisvæðingarfárinu og varpað er þar skýru ljósi á hvaða áhrif skertur eignarréttur hefur á efnahagslega hagsæld. Áhangendur auðlindagjalds geta meira að segja fengið þarna á silfurfati upplýsingar um hve hátt gjald þeir þurfa að leggja á sjávarútveginn til að koma markaðsvirði eigin fjár fyrirtækja í atvinnugreininni niður í nánast ekki neitt: 5,60 krónur á þorskígildi miðað við stöðuna í lok árs 2005!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Um bloggið

Álftaland 5

Höfundur

Atli Rúnar Halldórsson
Atli Rúnar Halldórsson

Nota bene

Myndirnar mínar á flickr.com

www.flickr.com
Atli  Rúnar Halldórsson's Fiskidagur '09 - súpukvöld photoset Atli Rúnar Halldórsson's Fiskidagur '09 - súpukvöld photoset

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 21
  • Frá upphafi: 210259

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 20
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband