Djöfuls kvótakerfið

Fyrirtæki á Vestfjörðum lenti í rekstrarerfiðleikum og málefni þess bárust inn í sali Alþingis. Þar er meira mannvit en víðast annars staðar undir einu þaki eins og allir ættu að vita. Einn ræðumaður á löggjafarsamkomunni var ekki í vafa um hvað væri að  gerast fyrir vestan. Auðvitað hafði Kárahnjúkavirkjun leikið vestfirskt atvinnulíf svona grátt, ruðningsáhrifin alræmdu. Sjálfsagt hafa margir fulltrúar mannvitsins í salnum kinkað kolli. Þetta kom upp í hugann þegar greint var frá því um helgina að rækjuvinnsla í Bolungarvík hefði sagt upp starfsfólki. Bæjarstjórinn kvað þetta vekja upp spurningar um fiskveiðistjórnunarkerfið. Verkalýðsforinginn á staðnum var ekki neinum í vafa. Þetta er auðvitað stjórnvöldum og kvótakerfinu að kenna. Áleitin spurning í framhaldinu: Gleymdist virkjunin fyrir austan á þessu blórabögglauppboði? Það hlýtur að vera augnabliksyfirsjón að varpa ekki að minnsta kosti hluta af ábyrgðinni á Kárahnjúkavirkjun. Hvar er nú mannvitið? Hvar er Andri Snær?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Um bloggið

Álftaland 5

Höfundur

Atli Rúnar Halldórsson
Atli Rúnar Halldórsson

Nota bene

Myndirnar mínar á flickr.com

www.flickr.com
Atli  Rúnar Halldórsson's Fiskidagur '09 - súpukvöld photoset Atli Rúnar Halldórsson's Fiskidagur '09 - súpukvöld photoset

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 21
  • Frá upphafi: 210198

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 21
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband