Mánudagur, 15. maí 2006
Hálfkák í Árborg
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Laugardagur, 13. maí 2006
Sylvíupestin
Óskaplegur léttir verður það nú þegar Evrópusöngvakeppnin verður afstaðin og fjölmiðlar snúa sér að einhverju öðru en þessu mígandi ruglaða fyrirbæri sem gengur undir heitinu Sylvía Nótt. Að vísu kallaði þjóðin þetta yfir sig í atkvæðagreiðslu en þá hefur líklega komið á daginn að eitthvað er til í því sem einn olíumafíósinn sagði í tölvupósti forðum, í samráðsbissness olíufélaganna gegn viðskiptavinum sínum: fólk er fífl! Lagið klingir svo sem þokkalega en fyrirbærið sem syngur er einnota og alls ekki til útflutnings - alla vega ekki á vegum ríkisins.
Það birti reyndar til um stund þegar þær fréttir bárust frá Grikklandi að stjórnendur söngvakeppninnar væru að spá í að gefa fyrirbærinu vænt drag í afturendann og senda það út úr keppninni. Því miður virðast vonir hafa dvínað um að þessum ósköpum lykti á þann veg sem hefði reyndar verið eina leiðin til að þjóðin og Ríkisútvarpið héldu andliti. Nú er eina vonin sú að fyrirbærið fái á trýnið í keppninni sjálfri og verði sent heim stigalaust.
Það segir reyndar sína sögu um veruleikafirringu fjölmiðlafólks að það heldur að fólk flest hreinlega titri af spenningi yfir að fá yfir sig alla þessa þvælu og dónaskap sem upp úr fyrirbærinu vellur. Staðreyndin er nefnilegla sú að flestir eru búnir að fá upp í kok af ruglinu.
Toppurinn á markaðssetningu fyrirbærisins var reyndar þegar börn fjölmenntu að ESSO-stöð til að berja það augum en svo mætti engin Sylvía Nótt og hafði alltaf ætlað sér að gera ESSO og börnin að fíflum með því að mæta ekki. Fari Silvía Nótt norður og niður......
Bloggar | Breytt 15.5.2006 kl. 12:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 10. maí 2006
Reykjavíkurmeistaratitill í sjónmáli
Markvörðurinn á heimilinu stóð í ströngu í Egilshöll í dag þegar Víkingar og Fjölnismenn áttust við í Reykjavíkurmóti 5. flokks í fótbolta. Þetta var hörkuleikur og í járnum framan af. Markalaust að loknum fyrri hálfleik en í þeim síðari gáfu Víkingar í. Skoruðu fyrst beint úr aukaspyrnu og síðan í tvígang til viðbótar. Þrjú mörk gegn engu, sem kannski var ríflegur sigur miðað við gang leiksins en um slíkt er ekki spurt í fótboltaleik. Víkingar eru nú jafnir Fylki að stigum í riðli A-liða á Reykjavíkurmótinu en eiga leik til góða. Lyktir mótsins ráðast því í næstu tveimur leikjum, gegn Þrótti á laugardaginn kemur og gegn Fram annan laugardag. Engin fagnaðarlæti fyrirfram í Fossvogsdal en vissulega er staðan vænleg í augnablikinu....
Mánudagur, 8. maí 2006
Blað sem kemur óorði á blaðamennsku
Fleygt var þegar Vilmundur Gylfason notaði hugtakið skítapakk yfir ákveðna menn sem honum var í nöp við innan Alþýðuflokksins sáluga. Það myndi hins vegar jafnast á við hrós að brúka slíkt heiti yfir þá sem skrifa DV. Í vetur sá ritstjórnin til þess að maður á Vestfjörðum svipti sig lífi,. Núna um helgina dæmdi hún blásaklausa stúlku á Ólafsfirði fyrir fíkniefnainnflutning með því að birta af henni mynd. Ritstjórinn kvaðst að vísu vera sorrí en helst er að skilja á honum að Vefnum væri um að kenna! DV stal myndinni umræddu af heimasíðu skíðafélagsins á Ólafsfirði og fór mannavillt. Fólk með snefil af dómgreind og þokkalegri siðferðisvitund hefði á svipstundu getað fengið staðfest hvort rétt fórnarlamb væri komið í gapastokk opinberrar myndbirtingar. En ekki sóðarnir á DV. Vinnubrögðin þar eru að skjóta fyrst og spyrja svo eða kannski öllu heldur að skjóta og spyrja alls ekki. Baugsveldið hefur sjálfsagt sín rök fyrir því að gefa út blað sem kemur óorði á blaðamennsku. Við hin þurfum að rökstyðja fyrir sjálfum okkur að kaupa og lesa DV og auglýsa í því. Mér varð á að kaupa fyrsta helgarblað eftir meinta siðbót. Það voru mikil mistök. Ritstjórnin hefur ekkert lært og engu gleymt. Hún mun áfram bjóða upp á úrval faglegra skandala þar til Baugsveldið fær nóg af því að borga með útgáfunni og lokar sjoppunni.
Dægurmál | Breytt 9.5.2006 kl. 06:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 3. maí 2006
Hinn árlegi vorfíflagangur á Alþingi
Það þótti tilefni fyrstu frétta ljósvakamiðla í kvöld að Alþingi kæmi saman að nýju eftir sveitarstjórnakosningar og yrði við störf um óákveðinn tíma fram á sumar. Í öllum grannríkjum vorum hefði það verið frétt ef þjóðþingið hefði ákveðið að starfa EKKI í júní, Hér er því hins vegar slegið upp með látum að alþingismenn vinni eins og annað fólk. Ekki að furða að löggjafarsamkoman skori ekki í viðhorfskönnunum hjá Gallup. Sjálfur starfaði ég í návígi við alþingismenn í hátt í tvo áratugi og spurði þá stundum af hverju það væri ekki regla að þingið sæti til dæmis út júní og kæmi saman að nýju í september frekar en að hætta í maí eða jafnvel í apríl á stundum og byrja ekki aftur fyrr en í október. Þá voru settar yfir mér ræður um tímafrek ferðalög þingmanna um landið til að heilsa upp á kjósendur, sveitarstjórnir og flokksfélög eða út um heim í opinberum erindagjörðum fyrir þing og þjóð. Þess vegna þyrfti Alþingi að hætta snemma og byrja seint. Þetta gat ég aldrei skilið og skil ekki enn. Einhvern veginn tekst þingmönnum í öðrum löndum að rækta samband við bakland sitt og sinna hvers kys skyldum án þess að þjóðþing þeirra leggist í dvala í fjóra til fimm mánuði á ári. Starfshættir Alþingis eru að þessu leyti frá þeim tíma þegar þinglausnir miðuðust við að bændur kæmust heim fyrir sauðburð og þingsetning miðuðst við að bændur væru þá að minnsta kosti búnir að smala heiðarnar heima fyrir, gott ef ekki slátra líka lömbunum og koma lærum og bringukollum upp í rjáfur í reykhúsunum. Þetta fyrirkomulag er langþreytt tímaskekkja og árlegt málæði dag og nótt á vordögum er bara fíflagangur og skilar því einu að hin svokallaða virðing Alþingis rýrnar enn frekar. En fyrst þingmönnum er skítsama um ímynd löggjafarsamkomunnar, því skyldi okkur hinum þá ekki standa á sama?
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 1. maí 2006
Hugurinn hvarflar að Enron
Langhelgin hefur meðal annars skapað svigrúm til að plægja í gegnum nýja ákæru í Baugsmálinu sem Mogginn birti í heild eftir þingfestingu í fyrri viku. Það er handtak að stauta sig fram úr þessum textamúrsteinum en víst var lesningin fróðleg og innihaldið býsna aðgengilegt leikmanni. Framsetningin hjá nýjum saksóknara er enda með teskeið, sjálfsagt í tilefni af því að dómarar töldu sig ekki skilja almennilega fyrri ákæru, ef ég man rétt. Þennan texta ættu nú flestir að skilja og dómarar vonandi líka. Auðvitað er svo hér sem annars staðar að menn eru saklausir uns sekt er sönnuð.
Eftir frávísun fyrra máls og sviftingar miklar hlýtur það að vekja athygli að kominn er fram langur og miður geðslegur ávirðingalisti frá nýjum saksóknara sem kom að borðinu. Einna mesta eftirtekt vekur sá kafli ákærunnar sem fjallar um meinta ranga upplýsingamiðlun Baugs til Verðbréfaþings Íslands og tilganginn telur saksóknari hafa verið þann að sýna stöðu félagsins betri en hún raunverulega var. Hugur lesanda hvarflar óhjákvæmilega að Enron-málsinu í Bandaríkjunum þar sem stjórnendur voru staðnir að brellum af ýmsu tagi til að fegra fjárhagsstöðu félagsins og halda uppi fölsku gengi á hlutabréfum í því.
Fréttastofa Sjónvarps spurði lögmann fyrir helgi um refsiramma vegna brota sem ákært er fyrir í Baugsmálinu. Stjórnarformaður Baugs sendi frá sér yfirlýsingu af þessu tilefni og reyndi að gera lögmanninn persónulega tortryggilegan fyrir fullkomlega eðlilegt svar við fullkomlega eðlilegri spurningu fjölmiðils. Athugasemd stjórnarformannsins er hins vegar fullkomlega út úr kú. Aðalatriðið er að ljúka þessu dæmalausa máli með efnislegri niðurstöðu í dómskerfinu. Ef málstaður Baugs er jafn góður og stjórnarformaðurinn heldur fram, hvers vegna þá þessi taugaveiklun út af sjálfsagðri og saklausri ljósvakafrétt?
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 22:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 29. apríl 2006
Farið hefur fé betra
Meira að segja Baugsveldið borgar ekki endalaust með útgáfu blaðsins sem fáir vilja kaupa og engir auglýsa í. Það er reyndar sérstakt rannsóknarefni fyrir félagsfræðinga og sálfræðinga framtíðarinnar að nálgast svör við því af hverju Baugur borgaði svo mikið og svo lengi fyrir svo illa innrætt og vont dagblað, DV sáluga. Blaðið var að vísu ekki alvont en þess verður ábyggilega ekki minnst fyrir nein góðverk þegar fram líða stundir. Ég vann einu sinni á Dagblaðinu sem Jónas Kristjánsson og Sveinn R. Eyjólfsson stofnuðu og gerðu að síðdegisstórveldi. Það var gaman að kynnast mönnum sem höfðu í puttunum að búa til og reka fjölmiðil. Jónas var flinkur ritstjóri og næmur fyrir umhverfinu. Svo gerðist bara eitthvað með manninn. Margt sem hann sagði síðar og gerði sem ritstjóri DV, allt þar til hann hrökklaðist úr starfi í vetur í kjölfar sjálfsvígs á Ísafirði, er hreinlega ekki hægt að skilja. Hann tók fullan þátt í að gera DV að skítadreifara og virtist bara stoltur af. Sveini R. Eyjólfssyni varð hins vegar á að hleypa Eyjólfi syni sínum að fyrirtækjaveldi sínu með þeim afleiðingum sem allir þekkja. Þeim mikla snillingi tókst að drepa fleiri fjölmiðla en hægt er að telja upp í lítilli klausu og svo gekk hann svo rækilega á svig við lög landsins að kostaði tukthúsdóm. Og pabbi var dreginn með í fallinu.
Dægurmál | Breytt 1.5.2006 kl. 22:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Um bloggið
Álftaland 5
Nota bene
Myndirnar mínar á flickr.com
www.flickr.com
|
Myndaalbúm
Bloggvinir
- Arnljótur Bjarki Bergsson
- Árni Þór Sigurðsson
- Júlíus Garðar Júlíusson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Kristín Björg Þorsteinsdóttir
- Killer Joe
- Helgi Már Barðason
- Axel Jóhann Axelsson
- Bjarni Harðarson
- Björn Jóhann Björnsson
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Eyþór Árnason
- gudni.is
- Guðmundur Örn Jónsson
- Hlynur Jón Michelsen
- Júlíus Brjánsson
- Leikhópurinn Lotta
- Ólafur Ingólfsson
- Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
- P.Valdimar Guðjónsson
- Ragnheiður Ólafía Davíðsdóttir
- Rúnar Birgir Gíslason
- Ungmennadeild Rauða krossins í Reykjavík (URKÍ-R)
- Vefritid
- Vilhjálmur Árnason
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (15.9.): 1
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 210967
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar