Fimmtudagur, 22. febrúar 2007
Klámbćndagrín, völd og áhrif
Bćndasamtökin létu sogast inn í dćmigert íslenskt múgsefjunarrugl og samţykktu ađ banna hópi klámframleiđenda ađ gista hjá sér á hóteli Sögu í marsmánuđi. Samtökin eiga vissulega Sögu, hafa ţar húsbóndavald, geta ţar međ ákveđiđ hverjir fá ţar ađ sofa og hverjir fá ađ éta. Ráđa ţví ađ sjálfsögđu líka hvađa ţjónustu ţau veita gestum sínum - ţeim sem á annađ borđ fá ađ lúra yfir nótt - ţar á međal hvađa kvikmyndafóđur sýnt er í kerfi hótelsins. Á Sögu geta velkomnir gestir nefnilega keypt sér klám ađ sjá á skjá herbergja sinna eđa eigum vér frekar ađ tala um mannlegar tilhleypingar, svo haldiđ sé til haga orđabúskap hótelhaldaranna. Í ţađ minnsta segja ţeir, sem gist hafa ţarna á Melunum og keypt klámţjónustu hús-bćndanna, ađ ţarna sé í bođi bláasta blátt fyrir sanngjarnan prís. Aldrei hefi ég gist á Sögu og hef ţví ekki notiđ klámţjónustunnar ţar. Ţess vegna veit ég heldur ekki hver er klámframleiđandi hótelsins. Tćplega samt liđiđ sem fćr ekki gistingu en aldrei skyldi mađur nú segja aldrei. Ţađ hlýtur ađ verđa upplýst á nćsta miđstjórnarfundi samtakanna hvađa vörumerki er á Sögukláminu. Klám er Sögubćndum sem sagt ekki ógeđfellt sem slíkt en kannski hallast Bćndasamtökin ađ annarri línu í klámiđnađi en ţessir vćntanlegu, hugsanlegu, fyrrverandi gestir ţeirra í mars. Ţađ vćri fróđlegt ađ vita líka meira um ţađ í kjölfar nćsta miđstjórnarfundar. Jamm og jćja. Ţađ lá kýrskýrt fyrir ađ kjörnir fulltrúar hefđu blásiđ ţetta mál upp, langt út fyrir alla ramma skynsemi og ţvert á flokkslínur, á Alţingi, í borgarstjórn og víđar. Ég hélt hins vegar ađ bćndur héldu ró sinni og gerđu sér grein fyrir ţví ađ ţá fyrst er hćtta á ferđum ţegar fulltrúar allra stjórnmálaflokka landsins verđa sammála um eitthvađ. Ţá ţarf venjulegt fólk ađ hugsa kalt og skýrt og vera sérstaklega á varđbergi, líka til sveita. En meira ađ segja bćndur, sem jafnan eru manna ţekktastir fyrir gestrisni viđ ókunnuga, létu glepjast og múgsefjast í ţetta skiptiđ. Megi klámiđnađurinn hins vegar fćra hóteli Sögu ómćldar tekjur hér eftir sem hingađ til. Amen.
------ OOO-----
Eitthvađ hefur komiđ yfir gamla ritstjórann minn á Alţýđublađinu sáluga, Árna Gunnarsson. Ég las grein eftir hann í Morgunblađinu í flugi frá Egilsstöđum í kvöld og ţar stendur orđrétt: ,,Enginn dregur ţađ í efa ađ ritstjóri Morgunblađsins er međ valdamestum mönnum ţessa lands." Ég segir nú bara, í hvađa félagsskap er hann Árni dagsdaglega? Sjálfur ţekki ég ekki nokkurn mann sem telur ađ Moggaritstjórinn sé međ valdamestu mönnum landsins! Og reyndar efast ég um ađ mér takist ađ finna einhvern sem telur ađ ţessi ágćti ritstjóri hafi veriđ einhvern tíma međ valdamestu mönnum. Ritstjórinn hafđi hins vegar umtalsverđ áhrif á sínum tíma en ţađ á ekki viđ lengur. Ég man ţá tíđ ađ stjórnmálamenn og ţjóđmćlapćlarar töldu forystugreinar Morgunblađsins skyldulesningu dagsins, biđu jafnvel skjálfandi eftir Stórudómum Reykjavíkurbréfsins á sunnudögum og gátu ekki á heilum sér tekiđ ef dómsorđiđ ţar eđa í Staksteinum var ţeim ekki hagstćtt. Núna hitti ég ótrúlega marga stjórnmálamenn og ţjóđmálapćlara sem ekki nenna ađ lesa Reykjavíkurbréf og forystugreinar - hvorki í Mogga né í öđrum blöđum - og er sléttsama um ţađ sem ţar stendur. Alţýđublađsritstjórinn fyrrverandi er í öđru tímabelti í skrifum sínum um Morgunblađiđ. Ţetta hefđi getiđ veriđ dćmigert leiđarapex ritstjóra fyrir 30-40 árum en passar ekki inn í neina veruleikamynd dagsins.
Um bloggiđ
Álftaland 5
Nota bene
Myndirnar mínar á flickr.com
www.flickr.com
|
Myndaalbúm
Bloggvinir
- Arnljótur Bjarki Bergsson
- Árni Þór Sigurðsson
- Júlíus Garðar Júlíusson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Kristín Björg Þorsteinsdóttir
- Killer Joe
- Helgi Már Barðason
- Axel Jóhann Axelsson
- Bjarni Harðarson
- Björn Jóhann Björnsson
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Eyþór Árnason
- gudni.is
- Guðmundur Örn Jónsson
- Hlynur Jón Michelsen
- Júlíus Brjánsson
- Leikhópurinn Lotta
- Ólafur Ingólfsson
- Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
- P.Valdimar Guðjónsson
- Ragnheiður Ólafía Davíðsdóttir
- Rúnar Birgir Gíslason
- Ungmennadeild Rauða krossins í Reykjavík (URKÍ-R)
- Vefritid
- Vilhjálmur Árnason
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 210540
Annađ
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar