Miðvikudagur, 4. apríl 2007
Pirraðir prestar og aulabrandarar
Ef að þjónar Þjóðkirkjunnar komast að því að það varði við lög að efna til þessa úrslitakvöld á föstudaginn langa er það einfaldlega lögreglumál og hlýtur lögreglan einfaldlega að skakka leikinn - nema þá að þeir hempuklæddu telji að löggan eigi að hafa hægt um sig líka á þessum helgasta helga degi ársins hjá kirkjunnar fólki. Ég minnist þess að hestamannafélag við Eyjafjörð auglýsti keppni í ístölti á föstudaginn langa hér um árið og sóknarprestur í héraðinu taldi slíkt raska helgiró kristinna manna og varða við landslög líka. Þjóðkirkjan sá hins vegar að sér og hrossin töltu um ísinn. Kristihaldið beið ekki nokkurn skaða af og ég efast um að einhverjir aulabrandarar í sal í Reykjavík breyti nokkrum sköpuðum hlut til eða frá um kristnihald landsmanna um páskana. Þjóðkirkjumenn ættu frekar að nota krafta sína í að berja saman ræður fyrir guðsþjónusturnar sínar um hátíðar en að taka þátt í að auglýsa þetta úrslitakvöld. Betri og ódýrari auglýsingu fær samkoman nefnilega ekki en þennan pirring prestanna.
Fáránlegt að úrslitakvöld Fyndnasta manns Íslands sé á föstudeginum langa | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Álftaland 5
Nota bene
Myndirnar mínar á flickr.com
www.flickr.com
|
Myndaalbúm
Bloggvinir
- Arnljótur Bjarki Bergsson
- Árni Þór Sigurðsson
- Júlíus Garðar Júlíusson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Kristín Björg Þorsteinsdóttir
- Killer Joe
- Helgi Már Barðason
- Axel Jóhann Axelsson
- Bjarni Harðarson
- Björn Jóhann Björnsson
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Eyþór Árnason
- gudni.is
- Guðmundur Örn Jónsson
- Hlynur Jón Michelsen
- Júlíus Brjánsson
- Leikhópurinn Lotta
- Ólafur Ingólfsson
- Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
- P.Valdimar Guðjónsson
- Ragnheiður Ólafía Davíðsdóttir
- Rúnar Birgir Gíslason
- Ungmennadeild Rauða krossins í Reykjavík (URKÍ-R)
- Vefritid
- Vilhjálmur Árnason
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Þetta ætti að vera eitthvað fyrir þig. Ég kemst ekki inn á Geirfinnsmálsumræðuna... http://mal214.googlepages. Síðan hefur verið afvirkjuð á Mbl.is
Guðrún Magnea Helgadóttir, 5.4.2007 kl. 17:18
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.