Stöð 2 og Útvarpið glansa, Sjónvarpið höktir

Kosningaumfjöllun Stöðvar 2 og Útvarpsins fer mjög vel af stað en Sjónvarpið þarf að taka sig á. Útvarpsmenn leyfa möguleikum miðilsins að njóta sín með því að fara inn á nýjar og ferskar brautir, til dæmis í úttekt á Norðausturkjördæmi í dag. Þar var kjördæmið dekkað að morgni dags og aftur síðdegis í samtengdum útsendingum frá Sauðarkróki, Ísafirði og Borgarnesi. Þannig var þetta sundurleita kjördæmi saumað saman í spjalli og pælingum sem lyktaði með hringborðsumræðum foringjanna í kjördæminu. Þetta tókst ljómandi vel og heitt var í kolum. Umræður í sjónvarpi eiga það til að vera þvingaðar og líflitlar en þarna losuðu menn um bindishnúta og rifust. Stjórnendur morgun- og síðdegisútvarps höfðu gott vald á hlutunum og þessi nýbreytni Útvarpsins kallar vissulega á að lagt sé við hlustir líka í næsta kjördæmi og helst því þarnæsta líka...

Kjördæmaþættir Stöðvar tvö fóru af stað fyrir páska í Stykkishólmi, síðan barst leikurinn til Akureyrar og í kvöld var röð komin að Selfossi vegna Suðurkjördæmis. Þetta voru allt ljómandi áheyrilegir þættir og þeim var undantekningarlítið vel stjórnað. Það skiptir nefnilega miklu máli að svona prógrammi sé stýrt af myndugleika og hæfilegri ágengni en að áheyrendur og áhorfendur fái líka góðan skammt af gagnrýnni umfjöllun og fróðleik í bland. Þetta gengur allt saman bærilega upp hjá Stöð 2 svo úr verða þættir sem maður missir helst ekki af. Útvarpið lofar líka góðu að í þeim efnum.

Sjónvarpið sendi út frá frá Selfossi í gærkvöld. Það var á köflum þokkalegasta umræða, samt ekki jafn lífleg og á Stöð 2 á sama stað núna í kvöld. Þetta eru reyndar ekki sambærilegir þættir, annars vegar hrein kjördæmaumræða á Stöð 2 en landbúnaður og utanríkismál í Sjónvarpinu. Stjórnendur umræðna af hálfu Sjónvarpsins á Selfossi ættu að taka sér tak fyrir næsta þátt. Það var sérstaklega áberandi í seinni kaflanum þegar utanríkismál voru tekin fyrir. Stjórnandinn missti tökin úr höndum sér og virtist ekki fylgjast með hvað klukkunni leið. Alla vega vona ég að „mannleg mistök" af einhverju tagi sé skýringin á að sjálft Íraksstríðið komst ekki að í sérstökum utanríkismálaþætti vegna þingkosninga árið 2007! Of langur tími fór í útlendingafjas frjálslyndra og menn endurtóku sig þar hvað eftir annað. Varaformaður frjálslyndra tók í reynd stjórnina í sínar hendur um skeið, sem var nú ekki beinlínis til að flikka upp á þáttinn.

Óþarft er að hafa mörg orð um umræður stjórnmálaleiðtoganna í Sjónvarpssal að kvöldi annars dags páska. Þær voru í alla staði fyrirsjáanlegar og undarlega lausar við að vera áhugaverðar, ef undan er skilin rimma um skattamál. Þátturinn í heild var náttúrulaus og leiðinlegur. Stjórnendur hefðu getað blásið í glæður með nýjum sjónarhornum eða óvæntum spurningum en voru greinilega ekki búnir undir slíkt. Þeir létu lulla áfram í hlutlausum gír, sem er út af fyrir sig þægilegt og orkusparandi en ekki sérlega tilþrifamikið.


Engin hreyfing og því síður Ísland

Framboðshópur með veglegt nafn skorar ekki hjá kjósendum. Svokölluð Íslandshreyfing stendur hvergi undir nafni og er stóra floppið í kosningunum að þessu sinni. Niðurstöður skoðanakannana mæla þetta framboð aftur og aftur í kringum fjögur prósent, meira að segja í Suðurkjördæmi þar sem fyrirfram hefði mátt ætla að eitthvað myndi reitast að því af atkvæðum út á allt moldviðrið vegna Þjórsárvirkjana. En ekkert gengur og engin teikn eru á lofti um að restin af kosningabaráttunni breyti nokkru þar um. Vinstrigrænum er sýnilega létt enda hefði það einkum verið ógn við þá – og hugsanlega Samfylkinguna og frjálslynda að einhverju leyti líka – ef Íslandshreyfingunni hefði tekist að ná einhverju flugi. Niðurstöður skoðanakannana staðfesta það. Ómar hefur trúlega toppað í göngunni miklu í miðbænum í vetur og haldið að þá væri að rísa bylgja sem á endanum fleytti fjölda fólks af Austurvelli inn í sali Alþingis. En svo kemur á daginn að þarna hafa sennilega aðallega verið verðandi kjósendur vinstrigrænna á rölti með blys á lofti. Íslandshreyfingin er reyndar ekki á meiri hreyfingu en svo að hún á í basli við að koma saman framboðslistum. Jakob Frímann lá þannig í símanum um páskana og hringdi út og suður um landið til að bjóða hinum og þessum upp í dans. Viðmælendur hans skildu erindið eindregið á þann veg að spurn eftir frambjóðendum væri áberandi meiri en framboðið. Og enn sjást engir framboðslistar.


Þetta eru allt saman asnar, Guðjón

Þingflokksformaður Samfylkingarinnar tjáði sig óvenju skýrt um gáfnafar forystusveitar Frjálslynda flokksins á einhverjum safnaðarfundi í dag. Í kvöldfréttum Útvarpsins sagði Össur Skarphéðinsson að frjálslyndir skildu ekki samninginn um evrópska efnahagssvæðið og boðaði námskeið í þessum fræðum fyrir þessa bandamenn í stjórnarstöðunni til að gera þá ríkisstjórnartæka í vor - ef til kæmi. Það yrði óvenjulegt í stjórnarmyndun að setja menn í gáfnapróf til að kanna hvort þeir séu tækir til starfa í Stjórnarráðinu. Hins vegar er þetta skiljanlegt húsráð hjá Össuri, ef rétt reynist að svona tómlegt sé innan höfuðskelja frjálslyndra. Vér fylgjumst auðvitað spennt með asnastykkjum í pólitík. Össur er líffræðingur, að vísu sérmenntaður í kynlífi laxfiska, en veit trúlega hvað hann syngur með þeirri dýrafræðilegu greiningu að frjálslyndir tilheyri stofni sem ber fræðiheitið Equus asinus.

Pirraðir prestar og aulabrandarar

Ef að þjónar Þjóðkirkjunnar komast að því að það varði við lög að efna til þessa úrslitakvöld á föstudaginn langa er það einfaldlega lögreglumál og hlýtur lögreglan einfaldlega að skakka leikinn - nema þá að þeir hempuklæddu telji að löggan eigi að hafa hægt um sig líka á þessum helgasta helga degi ársins hjá kirkjunnar fólki. Ég minnist þess að hestamannafélag við Eyjafjörð auglýsti keppni í ístölti á föstudaginn langa hér um árið og sóknarprestur í héraðinu taldi slíkt raska helgiró kristinna manna og varða við landslög líka. Þjóðkirkjan sá hins vegar að sér og hrossin töltu um ísinn. Kristihaldið beið ekki nokkurn skaða af og ég efast um að einhverjir aulabrandarar í sal í Reykjavík breyti nokkrum sköpuðum hlut til eða frá um kristnihald landsmanna um páskana. Þjóðkirkjumenn ættu frekar að nota krafta sína í að berja saman ræður fyrir guðsþjónusturnar sínar um hátíðar en að taka þátt í að auglýsa þetta úrslitakvöld. Betri og ódýrari auglýsingu fær samkoman nefnilega ekki en þennan pirring prestanna.


mbl.is „Fáránlegt“ að úrslitakvöld Fyndnasta manns Íslands sé á föstudeginum langa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hafnfirðingar og Vaðlaheiði

Það eru mikil tíðindi að hafnfirskir kjósendur skyldu ofan á allt annað hafa greitt atkvæði um hvernig staðið skyldi að jarðgangagerð gegnum Vaðlaheiði. Skyldu þeir hafa verið klárir á því sjálfir? En það má segja Samfylkingunni til hróss að nú er komið á samræmi í afstöðu frambjóðenda flokksins í norðurlandskjördæmunum til ríkisforsjár/einkarekstrar í samgöngumálum. Áður hefur komið fram að Samfylkingin í Norðvesturkjördæmi vill þjóðnýta Hvalfjarðargöngin og þá skar nokkuð í augu að Samfylkingin í Norðausturkjördæmi gæti á sama tíma hugsað sér Vaðlaheiðargöng sem einkaframkvæmd með tilheyrandi veggjöldum. En nú hefur sem sagt komið skýrt fram að ríkisvæðing skal það heita, bæði undir Hvalfirði og Vaðlaheiði. Og þá veit maður það að frjálslyndi jafnaðarmannaflokkurinn er í það minnsta ekki alveg nógu frjálslyndur til að þola einkarekstur á samgöngusviðinu. Það er nú það og svo er nú það.
mbl.is Samfylkingin vill að ríkið kosti Vaðlaheiðargöng
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gátan um Geirfinn og myrta konu í Fredrikstad

Glæpir, fjallferðir og páskar eru heilög þrenning kirkjuhátíðarinnar sem í hönd fer í Noregi. Frændur vorir þeysa á gönguskíðunum sínum um fjöll og firnindi um páska en á kvöldin leysa þeir morðgátur. Páskahátíðin er nefnilega sakamálatíð svo um munar í Noregi og rík hefð fyrir slíku. Glæpasögur í bókaformi seljast í bílförmum þar í landi í aðdraganda páska og hvorki útvarps- og sjónvarpsstöðvar klikka á að flytja landslýð páskaglæpi af einhverju tagi. Leikhús norska ríkisútvarpsins flytur til dæmis framhaldsleikrit um páska og ríkissjónvarpið sömuleiðis. Morðingjar byrja að salla niður fórnarlömb sín á skírdag og drepa markvisst fram á páskadag. Annan dag páska kemst upp um þá og morðgátan leysist í lokaþættinum. Þá geta Norðmenn pakkað niður í fjallakofunum sínum og haldið heim á leið í hvunndaginn.

Núna fá frændur vorir alvöruglæp til að smjatta á um páska, í viðbót við alla hina. Lögreglan í Fredrikstad boðar til fréttamannafundar síðdegis í dag til að greina frá því að fyrir liggi játning manns sem myrti ríflega sextuga konu, Inger Johanne Apenes, um hádegisbil laugardaginn 6. maí 1978. Hún hafði verið stungin til bana með eggvopni sem aldrei fannst og því síður sá sem beitti því. Málið vakti mikla athygli á þessum tíma, ekki síst vegna þess að sonur hinnar myrtu var þjóðkunnur Stórþingsmaður, Georg Apenes. Gríðarlega mikið var lagt í að upplýsa málið og það fékk að sjálfsögðu tilheyrandi fjölmiðlaathygli. Ég man sjálfur vel eftir þessu máli úr fjölmiðlum í Noregi um það þegar ég flutti sjálfur þangað sumarið 1981. En aldrei fékkst botn í málið, fyrr en nú. Það kemur sem sagt fram síðar í dag hvað varð til þess að tókst að upplýsa morðið í Fredrikstad fyrir nær þremur áratugum en svo mikið er víst að árið 2002 var rannsóknin tekin upp að nýju á nýjum forsendum og farið yfir allt ferlið í leit að vísbendingum eða atvikum sem lögreglumenn kynnu að hafa horft alveg fram hjá áður eða í það minnsta ekki gefið nægan gaum. Sakamál fyrnast á 25 árum í Noregi og ástæðan fyrir því að rannsóknin á morðinu í Fredrikstad var tekin upp á nýjan leik 2002 var einmitt sú að sakir morðingjans eða morðingjanna myndu fyrnast í maí 2003.

Allar þjóðir eiga sér óleystar morðgátur. Þessi var ein af þeim þekktari í Noregi. Svíar hafa Palme og við Geirfinn. Kannski ættu íslenskir lögreglumenn að ganga í smiðju kollega sinna í Norge og fræðast um hvernig þeir leystu morðgátu sem er næstum því jafngömul Geirfinnsmálinu. Hvað um það, páskum Norðmanna er bjargað. Löggan sér þeim fyrir raunverulegri morðgátu til að smjatta á um páska en norsk þjóð þarf ekki að bíða fram á annan dag páska eftir því að gátan leysist. Það gerist strax í dag, á fréttamannafundi sem hefst í Fredrikstad núna kl. 11 að íslenskum tíma.

PS. kl. 14:00. Þá er það upplýst. Morðinginn er 42 ára ,,venjulegur borgari" í Fredrikstad, fjölskyldufaðir sem aldrei hefur komist í kast við lögin. Hann var granni konunnar og aðeins 13 ára þegar hann braust inn í húsið hennar og stakk til baka. Hún stóð hann að verki og svona endaði það allt saman. Lögreglan var komin með um 4.000 nöfn á skrá yfir þá sem hugsanlega gætu gefið upplýsingar eða tengst málinu á einhvern hátt. Morðinginn var ekki í þeim hópi og hefur frá upphafi rannsóknar aldrei borið á góma hjá rannsóknarlögreglunni. Lögreglan fékk hins vegar ábendingu í febrúar síðastliðnum og boðaði manninn á sinn fund. Hann gekkst umsvifalaust við morðinu og hafði þá ekki rætt þetta fortíðarafbrot sitt við nokkurn lifandi mann. Morðinginn var á vinnustaðnum sínum í dag eins og venjulega. Sökin er fyrnd lögum samkvæmt en sök bítur sekan þó liðin séu 29 ár. Þetta er sem sagt alvöru páskakrimmi í Norge.


Ofmetin áhrif auglýsingaflóðsins

Ef stuðningsmenn álversstækkunar í Straumsvík hefðu verið 88 atkvæðum yfir í gærkvöld hefðu andstæðingarnir  kyrjað ærandi háværan söng um ójafnan leik í kosningabaráttunni, um Davíð gegn Golíati, um blanka áhugamenn gegn milljörðum Alcan og svo framvegis. Nú liggur bara fyrir að andstæðingarnir höfðu betur þrátt fyrir auglýsingaflóðið frá Alcan! Niðurstaðan varð nákvæmlega sú sem skoðanakönnun fyrir einhverjum vikum sýndi. Bæjarbúar voru í tveimur jafnstórum fylkingum viku eftir viku þrátt fyrir allt greinafárið á báða bóga og allar auglýsingarnar. Alcan ofmat mátt eigin auglýsinga og andstæðingarnir vanmátu kjósendur í Hafnarfirði. Auglýsingadeildir fjölmiðlanna græddu meira á öllu saman heldur en auglýsendurnir, þ.e. stuðningsmenn stækkunar annars vegar og andstæðingar hins vegar. Það hefur reyndar aldrei tekist að sýna fram á tengsl auglýsinga í kosningabaráttu annars vegar og kosninaúrslita hins vegar. Mörg dæmi er hins vegar um að alls engin tengsl séu þar á milli. Kvennalistanum gekk til dæmis vel í þingkosningum en samtökin tóku áberandi lítinn þátt í auglýsingadansinum. Klikkaður náungi bauð sig fram í forsetakjöri og auglýsti ósköpin öll í baráttunni fyrir húsbóndavaldi á Bessastöðum. Hann uppskar ekki nokkurt fylgi og þau sárafáu atkvæði sem hann fékk eru örugglega þau dýrustu í Íslandssögunni og þó víðar væri leitað.

 

 

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Álftaland 5

Höfundur

Atli Rúnar Halldórsson
Atli Rúnar Halldórsson

Nota bene

Myndirnar mínar á flickr.com

www.flickr.com
Atli  Rúnar Halldórsson's Fiskidagur '09 - súpukvöld photoset Atli Rúnar Halldórsson's Fiskidagur '09 - súpukvöld photoset

Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (14.9.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband